Mila Kunis og Ashton Kutcher upp að altarinu

Mila Kunis vill stofna fjölskyldu með Ashton Kutcher
Mila Kunis vill stofna fjölskyldu með Ashton Kutcher mbl.is/AFP

Mila Kunis og Ashton Kutcher eru sögð vilja ganga upp að altarinu á Englandi í sumar. Þrátt fyrir að parið eigi enn eftir að staðfesta trúlofunina vilja nánustu vinir þeirra meina að brúðkaupið sé á næsta leiti.

Parið hefur eytt miklum tíma í London að undanförnu en upptökur á Jupiter Ascending eru þar í fullum gangi og Kunis leikur eitt aðalhlutverka myndarinnar. Nánustu vinir Kunis og Kutchers segja parið vera mjög hrifið af Englandi og að þau vilji meira að segja gifta sig þar. Kutcher mun aðeins vera að bíða eftir að skilnaðurinn við Demi Moore gangi í gegn svo að hann geti gifst Kunis og stofnað með henni fjölskyldu.

„Þau vilja gifta sig sem allra fyrst því þau vilja stofna fjölskyldu. Þau eru farin að íhuga staðsetningu fyrir brúðkaupið og Kunis er hrifin af hugmyndinni um enska sveit,“ sagði heimildamaður dagblaðsins Daily Star.

„Þau vilja látlausa athöfn á fallegum stað,“ sagði heimildarmaðurinn sem býst við að parið bjóði fáum nánum vinum í brúðkaupið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren