Leikarinn Ashton Kutcher slapp naumlega þegar hann sprengdi sjálfan sig næstum því í loft upp á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna.
Kutcher og bróðir hans hugðust setja á heljarinnar flugeldasýningu fyrir fjölskyldu sína sem býr í Iowa þegar atvikið átti sér stað.
„Í ár hefði getað orðið banaslys. Ég og bróðir minn vorum að kveikja í flugeldunum þegar við komumst að því að einn þeirra vísaði niður í staðin fyrir upp og hann sprakk á jörðinni. Ég var sem betur fer með hlífðarbúnað,“ sagði leikarinn í viðtali við Jay Leno.