Þau voru þung skrefin sem bandaríski leikarinn Ashton Kutcher þurfti að taka er hann fór með veikan hund sinn til dýralæknis í gær þar sem lóga þurfti dýrinu.
Það hefur ekki farið framhjá neinum sem séð hefur mynd sem birt hefur verið í fjölmiðlum af þessari hinstu för hundsins að Kutcher var algjörlega miður sín. Unnustan Mila Kunis var við hlið hans honum til hughreystingar. Kutcher sagði ljósmyndurum sem fylgdust með að hundurinn væri veikur að því miður þyrfti að aflífa hann.
Í frétt Daily Mail segir Kutcher og Kunis sjáist oft ganga með hund en það er þó ekki sá sem þurfti að lóga. Því segir blaðið ekki ljóst hversu lengi Kutcher hefur átt veika hundinn sem var bolabítur.