Nýtrúlofaði leikarinn Ashton Kutcher, sem nýlega bar upp bónorðið til kærustu sinnar Milu Kunis, hefur sagt frá því hvernig honum fannst að vera einhleypur.
„Það er mjög gaman að vera einhleypur, þegar þú ert fjárhagslega í góðum málum og getur gert það sem þér sýnist, hvenær sem er, hvar sem er,“ sagði Kutcher í samtali við Men's Fitness og bætti við: „Ef þig langar að vera einhleypur þá ertu með konu í eina nótt og þú hringir ekki í hana aftur. Eftir einhvern tíma verður það frekar ógeðslegt að vera sá sem er alltaf að stunda einnar nætur gaman.“
Hann byrjaði að hitta Kunis skömmu eftir að slitnaði upp úr sambandi Moore og hans en þau gengu í hjónaband í september 2005. Það var síðan í september 2011 sem Moore greindi frá því að þau væru að skilja eins og greint var frá á mbl.is.