Fyrrverandi barnastjarnan Macaulay Culkin er sagður vilja gifta sig áður en fyrrverandi kærasta hans Mila Kunis gengur í hnapphelduna með Ashton Kutcher.
Culkin er í tygjum við leikkonuna Jordan Lane Price en hann vill ólmur giftast henni til að sanna að hann sé endanlega búinn að jafna sig á sambandsslitum hans og Milu Kunis.
Culkin og Kunis voru par í átta ár en hættu saman árið 2011.