Leikkonan Mila Kunis hefur nú selt hús sitt sem hún hefur búið í síðan árið 2008. Kunis fékk 457 milljónir króna fyrir eignina.
Kunis er flutt inn með kærasta sínum, Ashton Kutcher, en þau byrjuðu saman í apríl árið 2012 og eiga þau nú von á sínu fyrsta barni.
Á gamla heimili Kunis er bíósalur, sundlaug og fimm svefnherbergi svo eitthvað sé nefnt.
Kutcher og Kunis eru mjög spennt yfir sínu fyrsta barni sem er væntanlegt í heiminn á næstu vikum. Kutcher er þó sagður örlítið stressaður og hefur keyrt margoft frá sameiginlegu heimili þeirra Kunis að spítalanum til að sjá hversu langan tíma ferðin tekur.