Hollywood-parið Mila Kunis og Ashton Kutcher eignuðust stúlku á þriðjudaginn en þetta er þeirra fyrsta barn.
Samkvæmt heimildum TMZ voru þau Kunis og Kutcher mætt upp á Cedars-Sinai spítalann í Los Angeles um klukkan sex um morguninn á þriðjudaginn en um kvöldið kom stúlkan í heiminn.
Hvorki Kunis né Kutcher hafa tjáð sig um nýja fjölskyldumeðliminn en eftir að Kunis tilkynnti að hún væri ólétt í maí þá hefur hún reynt að halda sig fyrir utan sviðsljósið.
Kutcher og Kunis trúlofuðu sig í febrúar á þessu ári.