Mila Kunis og Ashton Kutcher eignuðust sitt fyrsta barn í vikunni, litla stúlku. Stúlkan hefur fengið nafnið Wyatt Isabelle Kutcher.
Kutcher, sem hefur haldið sig frá sviðsljósinu undanfarið, setti inn tilkynningu á vefsíðuna sína í gær. „Okkur Milu langar til að bjóða Wyatt Isabell Kutcher velkomna í heiminn. Megi líf hennar einkennast af undrun, ást, hlátri, góðri heilsu, hamingju, forvitni og næði,“ skrifaði Kutcher sem svífur um á bleiku skýi þessa dagana.
Kutcher deildi nokkrum ljósmyndum af nýfæddum börnum með aðdáendum sínum og bað þá um að giska hvaða barn væri hans eigið. „Getið þið giskað á hvaða barn er okkar, eða skiptir það kannski ekki máli? Öll börn eru sæt.“