Demi Moore og Ashton Kutcher eru greinilega góðir vinir í dag en þau skildu í fyrra. Kutcher eignaðist sitt fyrsta barn í lok september með leikkonunni Milu Kunis en Moore mætti í athöfn hjá nýbökuðu foreldrunum þar sem dóttir þeirra, Wyatt Isabelle, var blessuð að kabbalah-sið.
Ásamt Moore mættu dætur hennar, Rumer og Tallulah. „Demi Moore og dætur hennar óskuðu þeim til hamingju og fengu að halda á litlu stúlkunni,“ sagði heimildamaður dagblaðsins The Sun.
Moore kom færandi hendi í athöfnina og gaf Isabelle fallegan myndaramma og sérhannað teppi úr kasmírull.
Moore og Kutcher voru gift frá árinu 2005 til 2013.