Tónlistarveislan sem mun standa yfir næstu daga hófst í morgun á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund þar sem stelpurnar í Ylju sáu um að skemmta heimilisfólkinu og öðrum gestum. Í Hörpu kom svo fram kór leikskólabarna en 674 tónleikar verða á 52 stöðum á Off venue dagskrá hátíðarinnar.
Ekki var annað að sjá en að heimilisfólkið á Grund kynni vel að meta tóna Ylju og þeir fjölmörgu tónleikagestir sem lögðu leið sína í Hörpu í dag tóku að sama skapi vel á móti öldungakór leikskólans Miðborgar, sem samanstendur af elstu börnum starfsstöðva leikskólans.