Mörgum er minnisstætt þegar ákveðið fjölmiðlafár myndaðist þegar Brad Pitt og Jennifer Aniston hættu saman og Pitt byrjaði með Angelinu Jolie. Almenningur virtist lifa sig inni í skilnaðinn því fólk skiptist þá í tvo hópa og voru ýmist með Aniston eða Jolie í liði. Næstum því áratug síðar er fólk enn að tala um þennan sögulega skilnað. „Mér þykir þetta ekki sárt,“ sagði Aniston nýverið í viðtali þegar hún var spurð út í skilnaðinn.
Aniston virðist vera komin yfir Pitt þó að margir aðdáendur hennar séu enn að velta sér upp úr sambandi þeirra. „Ég held að þetta sé saga sem fólk heldur áfram að segja vegna þess að þetta er góð fyrirsögn,“ sagði Aniston í viðtali við CBS Sunday Morning. Hún vildi þá meina að fjölmiðlar héldu umræðunni á lofti. „Við sendum hvort öðru hamingjuóskir og svoleiðis,“ sagði Aniston aðspurð hvort að hún og Pitt ættu en í einhverjum samskiptum.
Í dag, um 10 árum eftir að Aniston og Pitt skildu, er Pitt giftur og kominn með sex börn á meðan Aniston er trúlofuð en barnlaus.