Tímaritið Radar Online greinir frá því í vikunni að leikarinn Ashton Kutcher hafi verið kallaður til sem vitni í réttarhöldum yfir morðingja Ashley Ellerin, en Ellerin og Kutcher voru saman þegar Ellerin var myrt á hrottalegan hátt árið 2001.
Michael Thomas Gargiulu hefur verið ákærður fyrir morðið og er hann að auki sakaður um að hafa myrt fjórar aðrar konur að minnsta kosti. Gargiulu bjó á sínum tíma nálægt heimili Ellerin. Morðið var afar ógeðfellt en hann á að hafa stungið hana 47 sinnum með hníf. „Hann skar háls Ellerin svo illa að höfuðið fór næstum því af,“ segir í málsgögnum sem blaðið hefur undir höndum.
Ákæruvaldið í málinu heldur því fram að Gargiulu sé geðveikur raðmorðingi sem myrði konur sér til ánægju og misnoti þær kynferðislega. Réttarhöldin munu hefjast á næstu mánuðum, að sögn blaðsins.