Fregnir herma að Tom Cruise og Katie Holmes hafi eldað grátt silfur síðan þau skildu árið 2012. Ástandið er sagt svo slæmt að þau neiti alfarið að tala saman, meira að segja um dóttur sína, Suri.
Samkvæmt heimildum TMZ hafa Cruise og Holmes ekki rætt saman í langan tíma og taka engar ákvarðanir saman um uppeldi dótturinnar. Öll samskipti er tengjast Suri litlu fara þá í gegnum einhverja milliliði sem þau hafa á sínum snærum.
Heimildamennirnir segja að bæði Cruise og Holmes séu þrjósk og ætli sér ekki að gefa eftir.
Heimildamaður TMZ sagði þá að Tom Cruise væri í góðu sambandi við dóttur sína þrátt fyrir að hafa ekki séð hana svo mánuðum skiptir vegna þess að hann er staddur í London þessa dagana við tökur á fimmtu Mission Impossible-myndinni.
Svo hefur sá orðrómur komist á kreik að Katie Holmes eigi í ástarsambandi við leikarann Jamie Foxx. Talsmenn Toms Cruise neituðu að tjá sig um þann orðróm þegar blaðamaður TMZ leitaði upplýsinga.