Hjónin Kim Kardashian og Kanye West eru greinilega miklir kvikmyndaunnendur því nýverið létu þau koma fimm milljóna króna heimabíó fyrir á heimili sínu.
Heimildarmaður Us Weekly greindi frá því að þetta flotta heimabíó gerir Kim og Kanye kleift að horfa á bíómyndir sama dag og þær koma í bíóhús. En ekki nóg með að bíókerfið hafi verið fokdýrt heldur kostar leiga á nýrri mynd allt að 70.000 krónur, þá hafa þau aðgang að myndinni í 24 klukkustundir.
Fregnir herma að Kim og Kanye séu ekki einu Hollywood-stjörnurnar sem hafa svona ríkulegt bíókerfi heima hjá sér því Mila Kunis og Ashton Kutcher eru sögð nota samskonar bíókerfi á heimili sínu.