Karlmaður á þrítugsaldri fannst látinn í sundlaug í garðinum hjá leikkonunni Demi Moore í gær. Maðurinn er talinn hafa verið hluti af starfsliði Moore. Hvorki Demi né dætur hennar þrjár þær Rumer, Scout og Tallulah voru heima þegar slysið varð.
Fimm manns voru heima þegar slysið varð. Samkvæmt nágranna hafa dætur Demi haldið stórar veislur í húsinu undanfarnar vikur þar sem fólk hefur verið að skemmta sér í sundlauginni. Hafa þær sett myndir úr veislunum á Instagram. Þær voru hins vegar í New York um helgina og því tengjast þær andlátinu á engan hátt. Lögreglan hefur hafið rannsókn á málinu.
Moore keypti einbýlishúsið þar sem slysið varð árið 2003 þegar hún var gift leikaranum Ashton Kutcher. Hún hefur búið ein í húsinu ásamt dætrum sínum frá árinu 2011.