Hver er Becky með fallega hárið?

Aðdáendur söngkonunnar hafa farið mikinn á samfélagsmiðlum undanfarið.
Aðdáendur söngkonunnar hafa farið mikinn á samfélagsmiðlum undanfarið. Skjáskot úr Lemonade

Lemonade, nýja plata poppdrottningarinnar Beyoncé, hefur mikið verið á milli tannanna á fólki síðustu daga. Aðdáendur söngkonunnar fóru á algeran yfirsnúning, enda langt um liðið síðan Beyoncé sendi frá sér síðustu plötu.

Textar laganna hafa vakið mikla eftirtekt, en margir telja að þar sé söngkonan að syngja um hjónaband sitt og Jay Z, og þá sér í lagi um framhjáhald eiginmannsins.

Frétt mbl.is: Framhjáhald eða hjónabandssæla

Aðdáendur söngkonunnar hafa farið mikinn undanfarna daga og keppast nú við að geta sér til um hver „Becky með fallega hárið“ er, en henni bregður fyrir í texta lagsins „Sorry“. Nokkrar konur hafa verið nefndar í því samhengi, þeirra á meðal söngkonan Rita Ora og fatahönnuðurinn Rachel Roy.

Báðar hafa í kjölfarið þurft að þola afar illt umtal síðustu daga, en aðdáendur Beyoncé hafa flykkst á samfélagsmiðla til að ausa úr skálum reiði sinnar. Ekki bætti síðan úr skák að Ora birti mynd af sér á brjóstahaldara skreyttum sítrónum, nokkrum dögum áður en Lemonade kom út, líkt og fram kemur í frétt Mirror.

Hverju sem því líður hafa hjónin Beyoncé og Jay Z malað gull síðustu daga, enda var plata söngkonunnar einungis seld á Tidal fyrst um sinn sem aðallega er í eigu rapparans.

Frétt mbl.is: Beyoncé malar gull fyrir eiginmanninn

Ekki bætti úr skák að Rita Ora deildi nýverið mynd …
Ekki bætti úr skák að Rita Ora deildi nýverið mynd á Snapchat þar sem hún klæddist brjóstahaldara, skreyttum sítrónum. Skjáskot Mirror
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Carin Gerhardsen
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Carin Gerhardsen