Mila Kunis greindi frá því á dögunum að eiginmaðurinn, leikarinn Ashton Kutcher, væri heldur betur að standa sig í rúminu.
Leikkonan var gestur í spjallþætti Ellenar Degeneres, en hún haði lýst því yfir að hún myndi gjarnan vilja eiga fleiri börn. Degeneres sá sér þá leik á borði og spurðu hvort hjónakornin væru að reyna.
„Ertu að meina hvort við stundum kynlíf?“ sagði leikkonan, sem í framhaldi var spurð hversu oft, hvenær og hvernig þau stunduðu kynlíf. Að lokum var hún spurð hvort samlífið væri gott.
„Já, það er frábært,“ viðurkenndi leikkonan, sem roðnaði allhressilega að eigin sögn.
Frétt Daily Mail