Leikarahjónin Mila Kunis og Ashton Kutcher eiga von á litlum erfingja en fyrir eiga hjónin dótturina Wyatt sem er tæplega tveggja ára gömul.
„Ashton ljómar allur af gleði þegar hann talar um Wyatt og litla krílið sem er á leiðinni. Allt varðandi föðurhlutverkið er honum eðlislægt,“ sagði heimildamaður People.
Fréttirnar þurfa ekki að koma á óvart því leikkonan hafði skömmu áður greint frá því að hún myndi gjarnan vilja stækka fjölskylduna.