Leikarahjónin Ashton Kutcher og Mila Kunis reyna eftir fremsta megni að halda tæplega tveggja ára dóttur þeirra utan sviðsljóssins.
Hjónakornin, sem eiga von á öðrum erfingja, láta lítið sjá sig opinberlega með stúlkuna auk þess sem þau deila ekki myndum af henni á samfélagsmiðlum.
Spurður hvort Kutcher vildi að dóttirin fetaði í fótspor hans sagði leikarinn einfaldlega „nei“.
„Ef hún tekur þá ákvörðun er það í fínu lagi. Svo lengi sem það er ekki hennar val er það mitt hlutverk að vernda hana fyrir allri vitleysunni.“
Frétt ET