Leikarahjónin Ashton Kutcher og Mila Kunis eiga von á barni á næstunni. Nú hafa hjónakornin greint frá því að lítill drengur sé væntanlegur í heiminn.
„Við höfum ekki sagt neinum frá því, en við eigum von á dreng,“ sagði Kutcher í spjallþætti Seth Meyers.
Fyrir eiga hjónin tveggja ára dótturina Wyatt, en líkt og fram kemur í frétt Daily Mail hafði leikarinn áður sagt að hann vonaðist til þess að ófædda barnið yrði stúlka, þar sem dóttir þeirra hjóna væri svo vel heppnuð.
Þá sagði hinn hamingjusami faðir einnig að Wyatt litla talaði bæði ensku og spænsku, auk þess sem hún væri að læra rússnesku.