Janet Jackson eignast son

Janet Jackson ásamt eiginmanni sínum, Wissam Al Mana.
Janet Jackson ásamt eiginmanni sínum, Wissam Al Mana. mbl

Bandaríska tónlistarkonan Janet Jackson hefur eignast sitt fyrsta barn fimmtug að aldri. Frá þessu greinir fjölmiðlafulltrúi hennar. 

Fram kemur í yfirlýsingu að Jackson og eiginmaður hennar Wissam Al Mana, sem er kaupsýslumaður frá Katar, séu í skýjunum yfir fæðingu lítils drengs, sem hefur fengið nafnið Eissa Al Mana. Frá þessu er greint á vef BBC.

Þar segir enn fremur að móður og barni heilsist vel. 

Í apríl í fyrra heyrðist fyrst orðrómur um að Jackson væri ófrísk þegar hún ákvað að fresta tónleikaferðalagi sínu til að fylgja eftir plötunni Unbreakable.

Hún hafði greint frá því að hún vildi stofna fjölskyldu með eiginmanni sínum, en hún gekk að eiga hann árið 2012. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren