Þegar árið 2018 gekk í garð urðu kaflaskil í lífi poppprinsessunnar Britney Spears. Söngkonan hélt sína síðustu tónleika í Las Vegas í bili en Spears hefur komið þar fram í fjögur ár.
Spears byrjaði með tónleikana Britney: Piece of Me á Planet Hollywood í desember árið 2013. Tónleikaröðin átti upphaflega vera í tvö ár en samningurinn við Spears var framlengdur um tvö ár í viðbót vegna vinsælda. Á gamlárskvöld flutti Spears 100 mínútur af efni og tók gömlu slagarana sína eins og vanalega.