Sterk yfirlýsing í anda #metoo-byltingar

Angelina Jolie og flestar stjörnur kvöldsins mættu í svörtu.
Angelina Jolie og flestar stjörnur kvöldsins mættu í svörtu. Ljósmynd/Twitter

Kvik­mynd­in „Three Bill­bo­ards Outsi­de Ebb­ing, Mis­souri“ í leik­stjórn Martin McDonagh hlaut flest verðlaun á BAFTA-verðlauna­hátíðinni sem fram fór í kvöld. Myndin hlaut samtals fimm verðlaun en var tilnefnd til níu.

Myndin var valin besta myndin í kvöld auk þess sem Frances McDormand var valin besta leikkonan í aðalhlutverki. „Ég reyni að hafa sterkar kvenpersónur í myndunum mínum,“ sagði leikstjórinn Martin McDonagh. Hann sagði að sigurinn væri sterk yfirlýsing í anda #metoo-byltingarinnar.

Kvikmyndastjörnur og -framleiðendur streymdu í Royal Al­bert Hall í svörtu til að sýna sam­stöðu með #met­oo-bylt­ing­unni og benda á mik­il­vægi þess að skera þarf upp her­ör gegn kyn­bundnu of­beldi og ann­arri kyn­bund­inni mis­mun­un. 

Bafta-hátíðin fer fram mitt á milli Gold­en Globe og Óskars­ins og mun því ýta enn frek­ar und­ir hverju von er á í mars þegar Óskar­sverðlaun­in verða af­hent. 

Mexíkóski leikstjórinn Guillermo del Toro var valinn besti leikstjórinn fyrir rómantísku fantasíuna „The Shape of Water“. 

Gary Oldman var valinn besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í myndinni „Darkest Hour“. Oldman leikur Winston Churchill, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. „Þakka þér, herra Winston,“ sagði Oldman meðal annars þegar hann tók á móti verðlaunum sínum og sagði að Churchill hefði staðið sig vel á erfiðum tímum í seinni heimsstyrjöldinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler