Brandon Lee, sonur rokkarans Tommy Lee og Pamelu Anderson, tjáði sig við People um slagsmálin sem hann lenti í við föður sinn á mánudagskvöldið. Faðir hans er allt annað en ánægður með orð sonar síns og er sagður vilja nálgunarbann á hann.
Brandon kennir alkahólisma föður síns um hvað gerðist á milli þeirra. Hann hafi unnið að því að fá föður sinn til þess að verða edrú og hafi viljað að vandamálið héldist innan fjölskylu sinnar. Hann sá sér þó ekki annað fært en að tjá sig opinberlega þar sem faðir hans sagði sína sögu á samfélagsmiðlum.
TMZ greinir frá því að í Tommy sé brjálaður eftir yfirlýsingu Brandon. Nú vilji hann kæra hann, eitthvað sem sagt er að hann hafi hætt við áður en Brandon tjáði sig opinberlega. Hann er einnig sagður vilja nálgunarbann á hann sem bannar syni hans að koma nálægt honum og heimili hans.
Rokkarinn hélt áfram að segja sína hlið á Twitter eftir fréttina í People og segist hann meðal annars aldrei hafa verið hamingjusamari. Hann fái sér einn og einn drykk og hann eigi það skilið.
LMAAAO!!!! I’m happier than I’ve been in my entire life. I have a few drinks here & there because I’m fuckin retired and enjoying my life. I worked 30+ fuckin years I deserve it. You didn’t arrange any intervention, you barely spoke to me while u were here. Just coverin ur ass!! https://t.co/gYHHDX9R5E
— T❍mmy L33 (@MrTommyLand) March 7, 2018