Fæðingarplönin fóru úrskeiðis

Justin Timberlake og Jessica Biel eignuðust son árið 2015.
Justin Timberlake og Jessica Biel eignuðust son árið 2015. AFP

Connie Simpson, betur þekkt sem barnfóstra stjarnanna, er að gefa út foreldrahandbókina The Nannie Connie Way: Secrets to Mastering the First Four Months of Parenthood. ET greinir frá því að í bókinni segi leikkonan Jessica Biel frá því að fæðingarplön hennar og Justins Timberlakes hafi ekki gengið upp. 

Biel lýsir því í bókinni að þau hafi verið með tvær ljósmæður, dúla hafi verið á staðnum, þau hafi tekið hugleiðslutíma fyrir fæðinguna og lesið hippabækur. Þetta skipulag gekk þó ekki upp og þurfti Biel að fara í bráðakeisara. 

„Við komum heim búin á því, vonsvikin og gjörsamlega í áfalli. Ég var heltekin af öllu lífrænu, eiturefnalausu, náttúrulegu og hómópatísku fyrir barnið okkar sem kom í þennan heim í skurðstofu í gegnum skurð. Ég var einræðisherra sem gerði mig sjálfa og eiginmann minn brjálaðan.“

Jessica Biel og Justin Timberlake.
Jessica Biel og Justin Timberlake. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant