Opnar sig um ofbeldisfullt samband

Amy Schumer er nú hamingjusamlega gift kona.
Amy Schumer er nú hamingjusamlega gift kona. AFP

Grínleikkonan Amy Schumer er nýgift en ástarsambönd hennar hafa ekki alltaf verið dans á rósum. Schumer opnaði sig við Oprah Winfrey um þann tíma þegar hún var í ofbeldisfullu sambandi. 

„Ég meiddist oft óvart. Hann áttaði sig ekki á hversu harkalega hann tók í mig eða hristi mig eða ýtti mér, og ég datt og rakst á eitthvað og meiddi mig,“ sagði Schumer við Oprah þegar spjallþáttadrottningin spurði Schumer hvort hún hefði ekki að lokum áttað sig á því að allt þetta litla væri ofbeldi. 

Shumer segist geta ímyndað sér það eins og það hefði gerst fyrir klukkutíma þegar henni var hrint á bíl. „Og að hlaupa frá honum, haldandi á skónum mínum, hlaupandi frá honum.“

Kærastinn sannfærði Schumer um að það væri ekki hægt að elska hana og hann væri sá eini sem gæti mögulega elskað hana. Henni leið illa hans vegna eftir að hann meiddi hana af því honum leið illa. „Þú velur ekki að verða ástfangin af einhverjum sem meiðir þig og þú getur verið ástfangin af einhverjum sem meiðir þig,“ sagði leikkonan. 

Schumer taldi sig ekki vera konu sem lenti í ofbeldisfullu sambandi. Hún hefði áttað sig síðar á því að það væri ekki ein ákveðin gerð kvenna sem lenti í þessu heldur kæmi þetta fyrir allar konur. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler