Glöð með að þurfa ekki að gefa brjóst

Kim Kardashian er þriggja barna móðir.
Kim Kardashian er þriggja barna móðir. AFP

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian eignaðist sitt þriðja barn í byrjun árs með eiginmanni sínum, Kanye West. Ólíkt eldri börnum hennar koma þriðja barnið í heiminn með hjálp staðgöngumóður en Kardashian er himinlifandi með þá ákvörðun. 

Stjarnan viðurkenndi í sjónvarpsþætti á dögunum að hún væri til í að bæta einu barni við barnahópinn og sagðist virkilega hafa notið þess að eignast barn með hjálp staðgöngumóður.

Kardashian sem átti ekki kost á að ganga með barnið sjálf sagði það mikinn kost að þurfa ekki að gefa brjóst. „Ókei, þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið,“ segist Kardashian hafa hugsað með sér þegar hún fattaði að hún þyrfti ekki að gefa brjóst á nokkra tíma fresti. 

Kardashian fagnaði að sjálfsögðu mæðradeginum í gær og birti mynd af sér með börnunum sínum þremur. Hún óskaði öllum mæðrum til hamingju en telur sig þó vera heppnustu móður í heimi. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant