Brigitte Nielsen fæddi sitt fimmta barn

Danska leikkonan og fyrrverandi fyrirsætan Brigitte Nielsen ásamt eiginmanni sínum …
Danska leikkonan og fyrrverandi fyrirsætan Brigitte Nielsen ásamt eiginmanni sínum Mattia Dessi. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Brigitte Nielsen hefur eignast sitt fimmta barn, 54 ára að aldri. Lítil stúlka kom í heiminn á föstudag en fyrir átti Nielsen fjóra syni.

Hún og eiginmaður hennar, Mattia Dessi, hafa nefnt stúlkuna Fridu. „Við erum mjög glöð að bjóða fallegu dóttur okkar inn í líf okkar,“ sögðu foreldrarnir í samtali við People. 

Nielsen, sem er m.a. þekkt fyrir hlutverk sitt í kvikmyndunum Red Sonja og Beverly Hills Cop II, hefur verið gift fimm sinnum. Elsti sonur hennar er 34 ára og sá yngsti 23. Hún sagði frá óléttu sinni á Instagram í maí.

Nielsen giftist hinum 39 ára gamla Dessi árið 2006. 

family getting larger ❤️ #me #family #brigittenielsen #babybump

A post shared by Brigitte Nielsen (@realbrigittenielsen) on May 27, 2018 at 1:03pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson