Stjörnukokkurinn og matargagnrýnandinn Anthony Bourdain er tilnefndur til Emmy-verðlauna í tveimur flokkum. Þáttur hans „Parts Unknown“ hlaut fimm tilnefningar í viðbót.
Bourdain er tilnefndur í flokkunum fyrir bestu fræðandi þættina en þættirnir hafa unnið í þeim flokki síðustu fjögur ár. Hann er einnig tilnefndur fyrir handrit sitt að þáttunum Parts Unknown. Bourdain féll fyrir eigin hendi 8. júní síðastliðinn þegar hann var við tökur á þáttaröð sinni á Ítalíu.