Þáttaröðin Game of Thrones hlýtur flestar tilnefningar til Emmy-verðlaunanna 2018. Tilnefningar til verðlaunanna voru kynntar í Los Angeles í Kaliforníu í dag.
Game of Thrones hlýtur alls 22 tilnefningar en fast á hæla þeirra kemur önnur þáttaröð á vegum HBO, Westworld, ásamt einum ástsælasta gamanþætti vestanhafs, Saturday Night Live, með 21 tilnefningu hvor.
Efnisveitan Netflix trónir á fyrsta sinn á toppi tilnefningalistans yfir efnisveitur og sjónvarpsstöðvar, en Netflix hlýtur flestar tilnefningar allra, 112 talsins. Næst á eftir kemur HBO með 108, en fyrirtækið hefur síðstu 17 ár hlotið flestar tilnefningar.
Emmy-verðlaunin verða veitt 17. september og verða þá afhent í sjötugasta skipti. Kynnar á hátíðinni verða grínistarnir Michael Che og Colin Jost úr Saturday Night Live.
Hér má sjá tilnefningar í helstu flokkum:
Besta dramaþáttaröð:
The Americans
The Crown
Game of Thrones
The Handmaid’s Tale
Stranger Things
This Is Us
Westworld
Besta leikkona í dramaþáttaröð:
Claire Foy, The Crown
Tatiana Maslany, Orphan Black
Elisabeth Moss, The Handmaid’s Tale
Sandra Oh, Killing Eve
Keri Russell, The Americans
Evan Rachel Wood, Westworld
Besti leikari í dramaþáttaröð:
Jason Bateman, Ozark
Sterling K. Brown, This Is Us
Ed Harris, Westworld
Matthew Rhys, The Americans
Milo Ventimiglia, This Is Us
Jeffrey Wright, Westworld
Besta gamanþáttaröð:
Atlanta
Barry
Black-ish
Curb Your Enthusiasm
GLOW
The Marvelous Mrs. Maisel
Silicon Valley
Unbreakable Kimmy Schmidt
Besta leikkona í gamanþáttaröð:
Pamela Adlon, Better Things
Rachel Brosnahan, The Marvelous Mrs. Maisel
Allison Janney, Mom
Issa Rae, Insecure
Tracee Ellis Ross, Black-ish
Lily Tomlin, Grace and Frankie
Besti leikari í gamanþáttaröð:
Anthony Anderson, Black-ish
Ted Danson, The Good Place
Larry David, Curb Your Enthusiasm
Donald Glover, Atlanta
Bill Hader, Barry
William H. Macy, Shameless
Besti raunveruleikaþáttur (uppbyggður):
Antiques Roadshow
Fixer Upper
Lip Sync Battle
Queer Eye
Shark Tank
Who Do You Think You Are?
Besti raunveruleikaþáttur (keppni):
The Amazing Race
American Ninja Warrior
Project Runway
RuPaul’s Drag Race
Top Chef
The Voice