Nick Jonas og Priyanka Chopra eru trúlofuð. Þessu greindu stórstjörnurnar frá á Instagram-síðum sínum þar sem þau deildu myndum úr trúlofunarveislu sem þau héldu í Mumbai í dag. Þau klæddust bæði hefðbundnum indverskum fatnaði í veislunni sem haldin var í Mumbai.
Nick Jonas var áður í hljómsveitinni vinsælu Jonas Brothers en Priyanka er ein skærasta stjarna Indlands vegna hlutverka sinna í Bollywood-myndum, en hún hefur undanfarið látið meira á sér bera í Hollywood. Orðrómur hefur verið í þrjár vikur um að parið væri trúlofað, en þau hafa þó aðeins verið saman í nokkra mánuði.