Tæpur mánuður er síðan að fyrirsætan Cara Delevingne og leikkonan Ashley Benson sáust kyssast á flugvelli í London. Nú virðist Benson vera búin að staðfesta á Instagram að þær Delevingne séu par með því að skrífa „Mín“ undir mynd af Delevingne auk þess sem hún setti inn tjákn með dónalegri merkingu.
Í vor var Delevingne með Paris Jackson en það samband virðist hafa siglt sinn sjó og hefur fyrirsætan sést mikið með Benson í sumar. Elle greinir frá því að þær Benson og Delevingne hafi sést saman á kvikmyndahátíðinni í Toronto án þess þó að sýna ást sína opinberlega.