Flytja í ógnarstóra íbúð

Harry og Meghan eru að flytja.
Harry og Meghan eru að flytja. AFP

Hertogahjónin af Sussex eru að flytja en ekki langt þar sem þau munu flytja úr litlu húsi á lóð Kensington-hallar í íbúð í höllinni. Það verður nóg pláss fyrri þau Harry og Meghan í nýju íbúðinni en það er 21 herbergi í íbúðinni sem kölluð er íbúð 1. 

Samkvæmt Daily Mail var verið að taka íbúðina í gegn og kostaði það 1,4 milljónir punda eða rúmar 200 milljónir íslenskra króna. Var verið að gera við bæði þakið og skipta um glugga. 

Harry og Meghan verða í góðum félagsskap í höllinni þrátt fyrir að vera bara tvö með tvo hunda í svona stórri íbúð en Vilhjálmur og Katrín búa í íbúðinni við hliðina á, íbúð 1A. Hægt er að opna á milli svo bræðurnir þurfa ekki að fara út til þess að heimsækja hvor annan. 

Vilhjálmur, Katrín og börn verða næstu nágrannar Harry og Meghan.
Vilhjálmur, Katrín og börn verða næstu nágrannar Harry og Meghan. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant