Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave fer fram 26.-28. október á Rifi á Snæfellsnesi og býður upp á fjölbreytt úrval alþjóðlegra stuttmynda og íslenskra tónlistarmyndbanda.
Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er Hollywood-framleiðandinn Gale Ann Hurd sem var meðhöfundur og framleiðandi hinnar goðsagnakenndu Terminator með Arnold Schwarzenegger í aðalhlutverki.
Hurd er oft kölluð „The first lady of Sci fi“ og hefur auk Terminator framleitt myndir eins og Aliens, Hulk, Armageddon og The Walking Dead svo fáein dæmi séu nefnd.
Gale mun vera með masterklassa á hátíðinni en leikkonan Steinunn Ólína mun taka viðtal við Gale um feril hennar. Steinunn Ólína er einnig í dómnefnd hátíðarinnar ásamt Ottó Geir Borg handritshöfundi og Nanna Frank Rasmussen, gagnrýnanda hjá Jyllands Posten í Danmörku.
Hátíðin skipuleggur að auki, í samstarfi við Wift og bandaríska sendiráðið, sérstaka sýningu á heimildarmynd sem Gale framleiddi frá árinu 2017, sem heitir MANKILLER og fjallar um baráttu fyrsta Cherokee-kvenhöfðingjans í Bandaríkjunum, Wilma Mankiller, fyrir auknum réttindum frumbyggja.
Myndin verður sýnd samtímis í Frystiklefanum á Rifi og í Bíó Paradís sunnudaginn 28. október klukkan 20.00. Gale mun svara spurningum úr sal eftir myndina í Bíó Paradís.
Hér að neðan er sýnishorn úr heimildarmyndinni MANKILLER