Kanadíski söngvarinn Bryan Adams birti ljósmynd af tónleikum sínum í Nýju-Delí á Indlandi þar sem skuggi hans sést í loftmengun yfir tónleikagestum. Tónlistarmaðurinn segist aldrei hafa upplifað neitt þessu líkt og að þetta hafi verið töfrum líkast.
Loftgæði í höfuðborg Indlands eru þau sjöttu verstu í öllum heiminum samkvæmt frétt BBC. Skuggi Adams líkist einna helst draugi yfir áhorfendaskaranum.
Adams er nú á 66 tónleika ferðalagi og treður meðal annars upp á fimm stöðum á Indlandi.
View this post on InstagramA post shared by Bryan Adams (@bryanadams) on Oct 14, 2018 at 10:39am PDT