Rokkarinn Tommy Lee var fluttur á spítala í mars eftir slagsmál við Brandon Lee, son sinn sem hann á með Pamelu Anderson. Feðgarnir voru duglegir að tjá sig um atvikið í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum í kjölfarið. Nú virðist sem feðgarnir hafi slíðrað sverðin í anda jólanna.
Tommy Lee birti mynd af sér og syni sínum í faðmlögum og er tónninn allt annar en í mars þegar hann íhugaði að kæra son sinn. „Ég elska þig sonur,“ skrifaði Lee við mynd af þeim á Instagram í vikunni.
Fyrr á árinu sagði Tommy Lee son sinn hafi ráðist á sig. Brandon Lee segði hins vegar að faðir sinn glímdi við alkóhólisma. Móðir Brandons, Pamela Anderson, tók í sama streng og varði son sinn.
„Ég er viss um að heimurinn sjái sannleikann. Ég stend við hlið sonar míns sem brást við í sjálfsvörn og var hræddur um líf sitt,“ sagði Anderson í pistli eftir atvikið.
View this post on InstagramI love you son @brandonThomasLee
A post shared by ☨☯ɱɱ¥ ᒪ☰☰ (@tommylee) on Dec 12, 2018 at 11:12pm PST