Meghan hertogaynja þarf líklega ekki að hafa peningaáhyggjur það sem eftir er. Hún var þó ágætlega efnuð áður en hún hitti prinsinn sinn en hún sló fyrst í gegn í lögfræðidramanu Suits. Þegar leiklistarferillinn fór á flug breyttist margt og gat hún losað sig við gömlu ódýru fötin sín.
Í ítarlegri grein um Meghan í Vanity Fair er meðal annars greint frá fatagjafapartý sem fyrrverandi leikkonan hélt á heimili sínu. Segir nafnlaus heimildarmaður úr Hollywood að leikkonan hafi gefið ódýrari fötin sín í partýi sem kallað er „Sayonara Zara“ sem mætti lauslega þýða sem „bless Zara“.
Meghan hefur ekki klæðst fötum opinberlega úr verslunum á borð við Zara síðan hún gekk í bresku konungsfjölskylduna. Katrín svilkona hennar er þó aðdáandi og það sama má segja um Letiziu Spánardrottningu.