Svelti sig í tíu daga fyrir rauða dregilinn

Patricia Clarkson var ánægð með Golden Globe-styttuna eftirsóttu.
Patricia Clarkson var ánægð með Golden Globe-styttuna eftirsóttu. AFP

Stjörnurnar lögðu sig fram til að líta sem best út á Golden Globe-verðlaununum á sunnudaginn. Hin 59 ára gamla leikkona Patricia Clarkson vann verðlaun fyrir hlutverk sitt í Sharp Objects en til þess að líta sem best út borðaði hún ekki í heila tíu daga fyrir afhendinguna, eða svo komst hún að orði. 

„Mér líður frábærlega. Ég er góð, ég er góð. Ég er uppgefin og þetta er þyngra en ég,“ sagði Clarkson og átti við verðlaunagripinn eins og fram kemur á vef Us Weekly. „Ég er ekki að grínast í ykkur af því ég hef ekki borðað í eins og tíu daga.“

Það þarf varla að taka fram að ekki sé góð hugmynd að svelta sig fyrir stórviðburði. Clarkson var í það minnsta orðin svöng um kvöldið og sagðist ælta að borða mikið daginn eftir eða jafnvel seinna um kvöldið.

„Þetta belti er mjög þröngt og gerir líf mitt bara ömurlegt,“ sagði Clarkson. 

Patricia Clarkson á rauða dreglinum á Golden Globe.
Patricia Clarkson á rauða dreglinum á Golden Globe. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant