Amy Schumer greinir frá því í nýjum þætti á Netflix að eiginmaður hennar sé með einhverfurófsröskun. Schumer sem er 37 ára hefur verið gift kokkinum Chris Fischer í um eitt ár og eiga þau nú von á sínu fyrsta barni.
Samkvæmt ET vandaði Schumer sig mjög að segja frá greiningu Fischer. „Ég verð að byrja aftur af því mig langar að segja rétt frá af því ég elska hann mjög mikið,“ sagði grínleikkonan.
Schumer sagði að eiginmaður sinn hefði verið greindur með það sem kallað var Asperger en nú lýsir hún greiningu hans með því að segja að hann sé á einhverfurófinu. Fischer fékk greiningu eftir að hann kynntist Schumer sem segist hafa fallið fyrir öllu í fari hans sem sýnir að hann sé maður á einhverfurófinu.