Tómas A. Tómasson, veitingamaður, betur þekktur sem Tómas á Hamborgarabúllunni hefur sent frá sér auglýsingu um gjafaleik Hamborgarabúllunnar og tónlistarmannsins Auðs þar sem hann endurgerir mynd af þeim síðarnefnda á plötuumslagi plötunnar AFSAKANIR, sem gefin var út á síðasta ári.
Óhætt er að segja að vel hafi tekist til, en Baldur Kristjánsson, ljósmyndari, á heiðurinn af eftirgerðinni að hinni upphaflegu ljósmynd sem ljósmyndarinn Vignir Daði tók.
Auðs stendur að útgáfutónleikum plötunnar í Gamla bíó í kvöld.
View this post on InstagramA post shared by Hamborgarabúlla Tómasar (@hamborgarabullatomasar) on Mar 29, 2019 at 8:29am PDT