GDRN bæjarlistamaður Mosfellsbæjar

„Guðrún Ýr er fyrirmynd og innblástur fyrir konur í tónlist, …
„Guðrún Ýr er fyrirmynd og innblástur fyrir konur í tónlist, upprennandi stjarna og magnaður mosfellskur listamaður,“ segir m.a. í rökstuðningi menningar- og nýsköpunarnefndar Mosfellsbæjar sem útenefnt hefur GDRN sem bæjarlistamanna Mosfellsbæjar 2019. Hér er GDRN á tónaflóði Rásar 2 á Menningarnótt um síðustu helgi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, er bæjarlistarmaður Mosfellsbæjar árið 2019. Valið var tilkynnt á sérstakri hátíðardagskrá í lok bæjarhátíðarinnar Í túninu heima sem fer fram í Mosfellsbæ um helgina. 

Menningar- og nýsköpunarnefnd Mosfellsbæjar sér um val bæjarlistamanns ár hvert og veitti Björk Ingadóttir formaður nefndarinnar Guðrúnu verðlaunagrip eftir listakonuna Ingu Elínu ásamt viðurkenningarfé sem fylgir nafnbótinni.

Guðrún Ýr er uppalin í Mosfellsbæ og hefur verið í tónlist frá unga aldri. Hún hóf fiðlunám í Tónlistarskóla Mosfellsbæjar fimm ára, flutti sig síðar í Suzukiskólann og stundaði námið í ellefu ár. Eftir fiðlunámið færði hún sig í djasssöng og djasspíanó í FÍH meðfram námi í menntaskóla.

„Mig langar að þakka innilega fyrir þessi verðlaun, þetta er mikill heiður. Nú er ég búin að vera með minn eigin feril sem GDRN ekki nema í þrjú ár en ég hef verið að læra tónlist í um tuttugu ár og ég stæði ekki hérna í dag ef ekki væri fyrir allt frábæra tónlistarfólkið og tónlistarkennarana sem eru búnir að miðla af sinni reynslu til mín. Mig langar því að tileinka þeim þessi verðlaun, af því ég væri ekki hér í dag ef það væri ekki fyrir þau,“ sagði GDRN þegar hún veitti verðlaununum viðtöku í dag. 

„Magnaður mosfellskur listamaður“

Hún gaf út sína fyrstu tónlist árið 2017 og sló í gegn með laginu Lætur mig sumarið 2018. Á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrr á þessu ári hlaut Guðrún fern verðlaun. Plata Guðrúnar Hvað ef var valin poppplata ársins, lagið Lætur mig sem hún syngur með Flóna var valið popplag ársins. Að auki var Guðrún Ýr valin söngkona ársins í flokki popp-, rokk-, raf- og hipphopptónlistar og hlaut verðlaun fyrir tónlistarmyndband ársins við lagið Lætur mig.

Í rökstuðningi menningar- og nýsköpunarnefndar segir: „Guðrún Ýr er fyrirmynd og innblástur fyrir konur í tónlist, upprennandi stjarna og magnaður mosfellskur listamaður.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler