Netflix streymisveitan hefur tilkynnt að þáttaraðir The Crown verði sex talsins eins og upphaflega stóð til. Áður var búið að tilkynna að þáttaraðirnar yrðu einungis fimm.
„Þegar við fórum að undirbúa söguþráð fimmtu þáttaraðarinnar þá varð okkur ljóst að til þess að gera sögunni fyllilega skil þá þyrftum við að hafa þáttaraðirnar sex talsins eins og upprunalegar áætlarnir okkar gerðu ráð fyrir,“ segir Peter Morgan handritshöfundur þáttanna í tilkynningu sem Netflix sendi frá sér á Twitter.
News from the palace: we can confirm there will be a sixth (and final) season of @TheCrownNetflix, in addition to the previously announced five!
— Netflix UK & Ireland (@NetflixUK) July 9, 2020