Jón Gnarr fer með hlutverk Skugga-Sveins í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á samnefndu leikriti Matthíasar Matthíasar Jochumssonar. Áætlað er að frumsýna leikritið um miðjan janúar á næsta ári.
Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, mun leikstýra Skugga-Sveini að því er fram kemur í tilkynningu frá leikfélaginu. „Það er hreint út sagt stórkostlegt að fá náttúruaflið og listamanninn Jón Gnarr í hlutverk Skugga-Sveins, eina frægustu persónu íslenskra leikbókmennta. Það eru svo sannarlega spennandi tímar fram undan hjá LA og við getum ekki beðið eftir að hefja þetta ferðalag, kveikja í gömlum glæðum þessa verks og enduruppgötva það,“ segir Marta.
Leikritið Skugga-Sveinn eftir þjóðskáldið Matthías Jochumsson var fyrst sett á svið árið 1862.