Íþróttavöruframleiðandinn Adidas hefur selt dótturfyrirtæki sitt, Rebook, til stórfyrirtækisins Authentic Brands Group (ABG). Undanfarin ár hefur vörumerkið Reebok verið að sækja í sig veðrið og er orðið vinsælt aftur eftir erfiðan áratug.
Adidas keypti Reebok árið 2006 til þess að ná markaðshlutdeild af Nike í Bandaríkjunum. Það misheppnaðist og Reebok hvarf nánast af skómarkaðinum. Þegar Kasper Rorsted tók við sem nýr forstjóri Adidas árið 2016 réðst hann strax í stefnumótunarvinnu með það að markmiði að auka sölu á Reebok-skóm.
Aðgerðirnar eru fyrst núna að skila sér fyrir tilstuðlan markaðsherðferðar Rorsted en Adidas gerði meðal annars stóran auglýsingasamning við tónlistarkonuna Cardi B fyrir Reebok. Svo skemmir ekki fyrir að tíska níunda áratugarins þykir nú afar móðins en á þeim tíma reis veldi Reebok hæst.
Nú hefur ABG tryggt sér vörumerkið og stefnir á að auka vinsældir þess á næstu árum. Innan ABG-samsteypunnar er að finna fjölmargar fataverslanir eins og Forever 21, Brooks Brothers, Aeropostale, Barneys New York og Volcom.
ABG-samsteypan er einnig afkastamikil hvað viðkemur höfundarrétti fræga fólksins. Meðal þeirra eru tónlistargoðsögnin Elvis Presley, körfuboltahetjurnar Shaq og Julius Erving, hnefaleikameistarinn Muhammad Ali, leikkonan Marilyn Monroe og golfarinn Greg Norman.