Pamela Anderson vill skilnað eftir stutt hjónaband

Pamela Anderson vill skilnað.
Pamela Anderson vill skilnað. AFP

Baywatch-stjarnan Pamela Anderson vill skilnað frá eiginmanni sínum, Dan Hayhurst. Anderson og Hayhurst gengu í hjónaband á aðfangadag fyrir rúmlega ári en nú er leikkonan komin með nóg. 

Hayhurst var lífvörður Anderson áður en hún giftist honum eftir stutt samband. Heimildarmenn Rolling Stone segja hjónabandið búið. Anderson er sögð sækja um skilnað í Kanada þar sem hjónin búa.

Heimildarmaður Page Six segir að Anderson hafi fengið nóg vegna þess að Hayhurst hafi komið illa fram við hana. Hann var ekki góður við hana né sýndi henni stuðning. „Þau kynntust hvort öðru betur og þá áttaði Pamela sig á að Dan var í ekki sá eini rétti,“ sagði heimildarmaður. 

Þetta er fimmta hjónaband Anderson sem fer í vaskinn. Hún gift­ist tón­list­ar­mann­in­um Tommy Lee árið 1995. Þau skildu árið 1998. Hún gift­ist og skildi við Kid Rock árið 2006. Hún gift­ist svo fram­leiðand­an­um Rick Solomon tvisvar, árin 2007 og 2013, en hann lét ógilda bæði hjóna­bönd­in inn­an við ári eft­ir að þau giftu sig.

Í janú­ar árið 2020 sagðist And­er­son hafa gifst kvik­mynda­fram­leiðand­an­um Jon Peters. Áttu dög­um seinna greindi hún frá því að þau væri hætt sam­an. Hún opnaði sig síðar um að þau hafi aldrei verið lög­lega gift. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler