„Stolt af því að vera Íslendingar“

Elín, Eyþór, Sigríður og Elísabet Eyþórsbörn á leið út í …
Elín, Eyþór, Sigríður og Elísabet Eyþórsbörn á leið út í rútu eftir keppni í kvöld. mbl.is/Sonja Sif

Systkinin Sigríður, Elísabet, Elín og Eyþór Eyþórsbörn segja að það hafi komið þeim mikið á óvart að komast áfram í úrslit Eurovision söngvakeppninni í kvöld. Þau senda þakkir til allra heima á Íslandi, sama hvort þau hefðu trú á þeim eða ekki. 

„Við erum ótrúlega stolt af því að vera Íslendingar og fá að tala fyrir mannréttindum,“ sagði Sigga í viðtali við fjölmiðla eftir keppnina. 

Þau segja það gefa þeim tilgang sem manneskjur og sem tónlistarfólk að skilaboðin þeirra hafi náð í gegn til fólks um alla álfuna. Í gegnum keppnina hafa Systur vakið athygli á málefnum transbarna og stríðinu í Úkraínu.

„Son­ur minn er trans. Ég upp­götvaði ekki hversu þröng­sýnt fólk getur verið fyrr en hann kom út sem trans. Því ákváðum við að við vild­um opna augu for­eldra fyr­ir þessu mál­efni. Fólk get­ur verið þröng­sýnt, og við vilj­um ekki dæma það fólk, held­ur vilj­um við bara deila skila­boðunum og biðja fólk að elska börn­in sín skil­yrðis­laust,“ sagði Sigga á blaðamannafundi í höllinni fyrr í kvöld.

Hópurinn fær frí á morgun og ætlar fá sér gott kaffi og njóta lífsins áður en undirbúningur fyrir úrslitakvöldið hefst. 

Úrslit Eurovision fara fram hinn 14. maí næstkomandi og mun mbl.is halda áfram að flytja lesendum fréttir frá Tórínó út vikuna.

Systkinin voru mjög hrærð þegar fjölmiðlakonur hittu þau fyrir utan …
Systkinin voru mjög hrærð þegar fjölmiðlakonur hittu þau fyrir utan höllina eftir keppni. mbl.is/Sonja Sif
Á blaðamannafundinum drógu þær Systur um hvenær þær myndu stíga …
Á blaðamannafundinum drógu þær Systur um hvenær þær myndu stíga á svið á laugardaginn. Eins og sést á myndinni munu þær vera í seinni helmingnum. EBU / ANDRES PUTTING
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler