„Takmarkalaust starfsár“

Lára Sóley Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslans og Halla Oddný Magnúsdóttir …
Lára Sóley Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslans og Halla Oddný Magnúsdóttir listrænn ráðgjafi. mbl.is/Hákon

„Fram undan er takmarkalaust starfsár í öllum skilningi, því nú gefst loks tækifæri fyrir hljómsveitina að blómstra á ný,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands (SÍ), og tekur fram að gaman sé að geta tekið á móti gestum á opnu húsi í Hörpu á menningarnótt í dag sem marki upphaf starfsársins, ásamt með tónleikunum „Klassíkin okkar“, sem sendir verða út í beinni á RÚV föstudaginn 2. september, þar sem boðið verður upp á einleikaraveislu, og fyrstu áskriftartónleikum vetrarins fimmtudaginn 8. september.

Þess má geta að tvennir tónleikar verða í boði á menningarnótt, þar sem gestir geta annars vegar kynnst undrum alheimsins kl. 15 undir leiðsögn Stjörnu-Sævars og hins vegar heyrt klassíska hlaupalagalista Jóns Jónssonar kl. 17. Aðgangur er ókeypis en bóka þarf miða á sinfonia.is eða í miðasölu Hörpu á tónleikadegi.

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Jón Jónsson. Gestum gefst tækifæri á …
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Jón Jónsson. Gestum gefst tækifæri á að hlusta á klassískan maraþonhlaupalista Jóns á tónleikum í Hörpu í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekkert lengur sjálfsagt

„Við hlökkum til að fá tónleikagesti aftur í hús, enda bjóðum við upp á fjölbreytt, litríkt og kröftugt starfsár með fjölda innlendra og erlendra stjarna,“ segir Halla Oddný Magnúsdóttir, listrænn ráðgjafi SÍ. „Eitt af því sem faraldurinn kenndi okkur er að það er ekki sjálfgefið að geta notið menningar í eigin persónu og því um að gera fyrir fólk að drífa sig af stað og njóta þess að þetta er aftur hægt,“ segir Halla og tekur fram að hún hlakki mikið til fyrstu áskriftartónleika vetrarins þar sem heyra megi verkið Archora eftir Önnu Þorvaldsdóttur, staðartónskáld SÍ, undir stjórn Evu Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóra SÍ, sem heimsfrumflutt var við glimrandi viðtökur á BBC Proms í liðinni viku.

Eva Ollikainen aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Eva Ollikainen aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

„Á sömu tónleikum leikur Daniil Trifonov, sem er einn af stærstu stjörnum samtímans í píanóheiminum, píanókonsert nr. 4 eftir Beethoven,“ segir Halla og tekur fram að komandi starfsár endurspegli uppskeru sveitarinnar eftir þolgæði síðustu tveggja ára. „Við njótum þess á allt annan hátt en áður að fá þessar stórstjörnur til okkar og erum full þakklætis, því það er ekkert lengur sjálfsagt,“ segir Halla.

Sem fyrr verður, að sögn Láru og Höllu, boðið upp á fjölbreytta efnisskrá í vetur. „Enda krefst hlutverk okkar sem þjóðarhljómsveitar að við setjum upp marga ólíka hatta,“ segir Lára. Bendir hún á að boðið verði upp á sjö tónleika í rauðu tónleikaröðinni „þar sem heyra má kraftmikla sinfóníska tónlist með íslenskum og erlendum einleikurum í fremstu röð.

Hvað felst í aðgengileika?

Það eru einnig sjö tónleikar í gulu röðinni, sem hugsuð er fyrir þá sem vilja fjölbreytt og litrík meistaraverk úr ýmsum átum með glæsilegum einleikurum og einsöngvurum. Boðið er upp á fimm tónleika í grænu röðinni, sem allir nema Vínartónleikarnir verða sýndir í beinni útsendingu á RÚV. „Hér er um að ræða styttri tónleika án hlés með kynningum á sviðinu þar sem ljósi er varpað á ýmsar skemmtilegar sögur á bak við meistaraverkin sem heyrast,“ segir Lára og tekur fram að hugmyndin með grænu röðinni sé að hún sé aðgengileg. „Í því samhengi höfum við skoðað hvað felst í því að vera aðgengilegur, því það snýst ekki bara um að heyra kunnuglega tónlist heldur einnig hvernig efnisskráin er sett saman og kynnt fyrir áhorfendum,“ segir Lára og bendir á að vinsælar tónleikakynningar í Hörpuhorni fyrir áskriftartónleika gegni mikilvægu hlutverki í því að opna heim tónlistarinnar fyrir tónleikagestum.

Anna Þorvaldsdóttir er staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Anna Þorvaldsdóttir er staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Ljósmynd/Anna Maggý

Rækta tengslin við listafólkið

Af öðrum röðum nefnir Lára Litla tónsprotann, en undir merkjum hans verður boðið upp á ferna tónleika, þeirra á meðal stytta útgáfu af Töfraflautunni 18. febrúar undir stjórn Korniliousar Michaiidis og Dýrasinfóníuna eftir metsöluhöfundinn Dan Brown 13. maí. „Sami fjöldi tónleika er í bæði föstudagsröðinni, sem eru hugsaðir sem afslappaðir og styttri tónleikar í Norðurljósum þar sem kynnast má nýjum hliðum á listamönnum starfsársins, og í svörtu röðinni þar sem Sæunn Þorsteinsdóttir staðarlistamaður starfsársins er í einleikshlutverki og flytur m.a. verk eftir Bach, Önnu Þorvaldsdóttur og Shostakovitsj auk þess sem hún frumflytur nýtt verk eftir Veronique Vöku,“ segir Lára og tekur fram að gott sé fyrir hljómsveitina að rækta tengsl við listafólk með því að bjóða því að vinna að nokkrum ólíkum tónleikum á sama starfsárinu. Þetta eigi til dæmis við um Nathanaël Iselin, sem er staðarhljómsveitarstjóri ársins, Bertrand de Billy, sem er aðalgestastjórnandi sveitarinnar í ár, og Íslandsvininn og píanóleikarann Stephen Hough, sem verður listamaður í samstarfi á komandi starfsári. Hann kemur fram á einleikstónleikum 13. janúar, daginn eftir að hann leikur píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven með hljómsveitinni auk þess sem hann leikur píanókonsert nr. 2 eftir Rakhmanínov á tónleikum 23. febrúar, en síðastnefndu tvennir tónleikarnir eru hluti af upptakti að tónleikaferð sveitarinnar til Bretlands í apríl.

Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari heldur ferna tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands á …
Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari heldur ferna tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands á komandi starfsári.

„Í þeirri tónleikaferð verður einnig flutt verkið Metacosmos eftir Önnu, sem sjálf mun taka virkan þátt í tónleikakynningum, en hún býr í Bretlandi,“ segir Lára, en hljómsveitarstjóri verður Eva Ollikainen. „Við fengum boð frá sömu skipuleggjendum og sáu um tónleikaferðina okkar til Bretlands í febrúar 2020. Það er stefna þeirra að gefa þeim erlendu sveitum sem þeir bjóða tækifæri til að koma reglulega til að rækta sambandið við áhorfendur á staðnum,“ segir Lára og tekur fram að ýmsar aðrar tónleikaferðir séu í farvatninu sem verði kynntar síðar.

Vill þróa hljóm sveitarinnar

Í viðtali við Ollikainen í bæklingi, þar sem komandi starfsár er kynnt, kemur fram að meðal meginmarkmiða hennar sem aðalhljómsveitarstjóra SÍ sé að „leggja rækt við hljómbæ hljómsveitarinnar – þróa hennar einstaka hljóm“ enda sé það ósk hennar að hljómur SÍ verði „auðþekktur og sérstakur“. Þegar þetta er borið undir Láru og Höllu benda þær á að Eva Ollikainen sé metnaðarfull, hafi skýra framtíðarsýn og sé óþreytandi við að vinna að markmiði sínu í góðri samvinnu við hljóðfæraleikara sveitarinnar.

„Það er ekki sama hvernig svona stór hópur hljóðfæraleikara spilar sig saman og hlustar hver á annan,“ segir Halla og Lára bætir við að uppstilling hljómsveitarinnar á sviðinu geti t.d. haft afgerandi áhrif á samspilið og samhljóminn. „Við erum ótrúlega lánsöm að vera með þennan stórkostlega sal sem Eldborg er, en það er enn hægt að rannsaka möguleika hljómsins í honum,“ segir Lára og tekur fram að tónleikaferðir séu mikilvægur liður í vinnunni við að þróa hljóminn, enda afar lærdómsríkt að leika sömu verkin í ólíkum tónleikarýmum.

Laufey Lín Jónsdóttir kemur fram á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands …
Laufey Lín Jónsdóttir kemur fram á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í vetur. mbl.is/Hákon

Laufey alin upp hjá Sinfó

Auk framangreindra tónleika má nefna að boðið verður upp á ýmsa tónleika utan tónleikaraða. „Sem eru tilvaldir í Regnbogakort,“ segir Halla og nefnir í því samhengi kvikmyndasýninguna á Harry Potter og leyniklefanum í mars, tónleika í september þar sem Ungsveit SÍ leikur sinfóníu nr. 2 eftir Rakhmanínov og tónleika 27. október þar sem tónlist Laufeyjar verður flutt í hljómsveitarútsetningum. „Svo skemmtilega vill til að Laufey er nánast alin upp í hljómsveitinni, enda dóttir Lin Wei fiðluleikara og tók sjálf þátt í Ungsveitinni á sínum tíma,“ segir Lára.

Viðburður að fá Trifonov

Spurð um helstu hápunkta ársins segja Lára og Halla margt hægt að nefna. „Það er mikill viðburður að fá Trifonov til landsins,“ segir Lára og Halla bætir við: „Það er svo mikill viðburður að við ætlum ekki að sleppa honum fyrr en hann hefur líka leikið einleikstónleika laugardaginn 10. september, enda er hann ein af rokkstjörnum klassíska tónlistarheimsins,“ bætir Halla við og bendir á að faraldurinn hafi leitt til þess að einleikarar staldri stundum lengur við en áður og leiki oft tvenna tónleika með ólíkum efnisskrám, sem sé mikill fengur fyrir íslenska tónleikagesti.

Nefna þær í því samhengi m.a. tónleika 17. nóvember þar sem fiðluleikarinn Baiba Skride og sellóleikarinn Harriet Krijgh leika konsert eftir Sofiu Gubaidulinu ásamt bayan-leikaranum Elsbeth Moser auk þess sem flutt er verkið Sinfónískir dansar eftir Rakhmanínóv, en daginn eftir stýra þær kammertónleikum á föstudagstónleikum þar sem þær leika æskuverk eftir Shostakovitsj og Mendelssohn.

Daníel Bjarnason er staðarlistamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Daníel Bjarnason er staðarlistamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. mbl.is/Valgarður Gíslason

„Í byrjun nóvember verða hér glæsilegir pólskir tónleikar þar sem Jan Lisiecki leikur píanókonsert nr. 1 eftir Chopin,“ segir Halla og bendir á að laugardaginn 5. nóvember verði pólskt þema á einum af þremur barnastundum Sinfóníunnar á komandi vetri. „Ég er mjög spennt fyrir Íslandsfrumflutningnum á slagverkskonserti eftir Daníel Bjarnason í janúar í flutningi Martins Grubingers. Þetta verður síðasti séns til að heyra Grubinger spila, því hann ætlar að snúa sér að öðru en tónlistinni,“ segir Halla og tekur fram að hún hlakki einnig mjög mikið til tónleikanna 14. apríl þar sem Eva Ollikainen stjórni Metacosmos eftir Önnu Þorvaldsdóttur og sinfóníu nr. 5 eftir Tsjajkovskíj, sem verði í farteskinu fyrir tónleikaferðina, og einnig Luonnotar eftir Sibelius og Voice verser eftir Jukka Tiensuu þar sem Anu Komsi syngur einsöng.

„Það er alltaf svo gaman þegar maður fær stóru rómantísku sinfóníurnar í bland við nýtt og jafnvel dálítið flippað efni, en allt er þetta dýrleg músík,“ segir Halla. „Svo má ekki gleyma að Bertrand de Billy heldur áfram að stjórna sinfóníum Brahms og fær með sér flotta einleikara í konsertum eftir Brahms,“ segir Lára og bendir á að á tónleikum 9. mars leiki Sunwook Kim einleik í píanókonsert nr. 2 eftir Brahms og á tónleikum 8. júní leiki Augustin Hadelich einleik í fiðlukonsert eftir Brahms.

Hljóðrita tvö verka Önnu

„Meðan faraldurinn gekk yfir gátum við ekki verið með tónleika á Myrkum músíkdögum og því ánægjulegt að geta boðið upp á tvenna tónleika á hátíðinni í ár,“ segir Lára, en undir lok janúar verða tónleikar með verkum Báru Gísladóttur auk þess sem verk eftir meðal anars Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur og Gunnar Andreas Kristinsson munu heyrast.

Þess má að lokum geta að SÍ mun halda áfram að hljóðrita verk til alþjóðlegrar útgáfu. „Í vetur munum við hljóðrita tvö verk eftir Önnu, þ.e. Archora og Aiôn, hvort tveggja undir stjórn Evu,“ segir Lára og bendir á að SÍ hafi átt gjöfult samstarf við Sono Luminus á síðustu árum.

„Undir þeirra merkjum kemur á starfsárinu út ný plata þar sem verk íslenskra og bandarískra samtímatónskálda eru í forgrunni undir stjórn Daníels Bjarnasonar sem er listamaður í samstarfi hjá okkur. Meðal þeirra sem eiga verk á þeirri plötu eru María Huld Markan Sigfúsdóttir og Missy Mazzoli,“ segir Lára og tekur fram að ýmislegt fleira sé í bígerð sem of snemmt sé þó að segja frá.

Viðtalið við Láru og Höllu birtist fyrst á menningarsíðum í Morgunblaðinu fimmtudaginn 18. ágúst. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant