Á meðan laufin sofa

Hallur Már hefur sýslað við tónlist um áratugabil.
Hallur Már hefur sýslað við tónlist um áratugabil. Ljósmynd/Morgunblaðið

Hallur Már sendi frá sér stuttskífuna Gullöldin árið 2018 en snarar nú út breiðskífu sem kallast sýnir/athuganir. Andrúm og stemning er útgangspunkturinn, eiginleikar sem eru dregnir fram á einkar sannfærandi hátt.

„Í langan tíma hef ég unnið að því að skapa tónlist sem mér finnst að ég geti kallað mína eigin,“ segir Hallur Már í fréttatilkynningu vegna plötunnar. „Prufað, mótað, breytt, hent. Smám saman tóku að myndast þræðir og mynstur sem mynda nú þessar hljóðmyndir.“

Nýjasti ávöxtur vinnunnar er þessi plata sem út kom í septemberbyrjun og færði okkur mögulega haustið en rökkurbragur er yfir henni á köflum (fyrsta lagið heitir „Theme For This Dark Place“). Og þó. Verkið er marglaga og ekki er sýnt á öll spil í fyrsta rennsli. Og Hallur sjálfur tiltekur brasilískt bossanova sem áhrifavald, m.a. í stuttu spjalli við pistilritara!

Sóknin eftir stemningu sem ég nefndi í upphafi, hana nær Hallur að knýja vel fram í gegnum lögin öll, sem eru sjö að tölu. „Sú tónlist sem hefur haft mest áhrif á mig í gegnum tíðina byggist ekki endilega á melódíu eða lagasmíði heldur miklu frekar vissri stemningu, andrúmslofti sem leikur um tónlistina þó að það sé mögulega erfitt að festa fingur á það,“ segir Hallur.

Umslag plötunar sýnir/athuganir
Umslag plötunar sýnir/athuganir

Platan er í nákvæmlega þessum fasa, líður áfram í „ambient“-gír og kvikmyndatónlistarblær hangir sömuleiðis yfir. Eno, Radiohead, þetta kom upp í hugann og einnig Warp-merkið góða, þá einkum Boards of Canada en Hallur tekur hofmannlega ofan fyrir því meistaratvíeyki í laginu „Letiklukkur“. Á sama tíma er Hallur að tálga til persónulegan stíl sem blæðir meir og meir í gegn, ef ég ber saman þessi tvö verk sem út hafa komið frá honum. Sjá t.d. „Maílægð“ sem er nánast u-beygja frá þeim lögum sem á undan komu. Hrár gítarleikur stýrir því, nettir Tortoise-straumar og jafnvel Talk Talk (hámarkshrós!).

Lagið er stutt, hálfgerð stemma, og um miðbikið læðist inn ómur sem hljómar eins og básúna í blábyrjun en er líkast til hljóðgervill. Það er heillandi „æ ég hendi þessu bara inn“-andi yfir og ástæða fyrir því að sögn Halls.

„Hlutir geta tapað töfrum sínum með of mikilli vinnslu og útkoman verður kannski allt önnur en lagt var upp með í byrjun. Ég nota því oft upptökur eða hljóð sem gerast tiltölulega snemma í ferlinu, kannski bara fyrsta rennslið. Ég vil gjarnan reyna að halda þessu hráu og með því einhverjum galdri. Það er oft hagur í því láta hluti einfaldlega „slæda“.“

Aðspurður hvernig hann finni tíma í þetta segist hann vinna þetta á kvöldin og á nóttunni og þeim tíma sem hann getur stolið um helgar en Hallur er fjölskyldumaður. Tónlistin er unnin í heimahljóðveri og svo „hef ég sett trommusett í stofuna ef fólk er í útlöndum“ segir hann kímileitur en upplýsir greinarhöfund um leið að börnin séu komin á þægilegan aldur upp á svona brölt.

„Ég er líka kominn með giska góða sýn á það hvernig ég vil vinna þetta þannig að tíminn er kannski ekki aðalatriðið lengur,“ bætir hann við. „Verklagið er orðið nokkuð gott.“ Hann beri líka hluti undir félaga sína í Leaves, þar sem hann lék á bassa, en mikill kærleikur er með þeim og samband gott.

Hallur segist alltaf hafa unnið í eigin tónlist, einnig þegar hann var meðlimur í nefndri hljómsveit. Hann sé þannig tónlistarmaður að hann verði að gera eigin tónlist, hann tengi lítt við ábreiðustarfsemi og slíkt og muni seint troða upp á English Pub. Hann kveður með því að segja frá því að mögulega verði haldið upp á plötuna í október með einhvers konar gjörningi/boði hvar tónlistin fái að hljóma. Næsta plata sé svo að malla og marinerast í rólegheitum eins og hinar tvær gerðu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant