Hafnfirska söngkonan Klara Elíasdóttir hefur verið valin til þess að gegna hlutverki fjallkonu Hafnarfjarðarbæjar í ár.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.
Hafnarfjarðarbær býður upp á fjölbreytta dagskrá frá morgni til kvölds að þessu sinni en frekari upplýsingar um hana má sjá með því að smella hér.
Klara mun ávarpa gesti á Thorsplani klukkan 13.30 á morgun, fara með ástarljóð Fjallkonunnar 2023 til Hafnarfjarðar og frumflytja lag sitt „Loforð“.