Íslandsvinkona fann ástina á áttræðisaldri

Jane Seymour ásamt nýju ástinni.
Jane Seymour ásamt nýju ástinni. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Jane Seymour frumsýndi á dögunum nýja kærastann. Sá heppni heitir John Zambetti og er tónlistarmaður.

Seymour, sem er 72 ára, birti flotta mynd af sér með nýju ástinni á Instagram á dögunum með yfirskriftinni: „Aldrei verið hamingjusamari.“ 

Óljóst hvenær síðasta sambandi lauk

Leikkonan hefur fjórum sinnum gengið í það heilaga og á fjögur börn. Hún var gift Michael Attenborough frá 1971 til 1973, Geoffrey Planer frá 1977 til 1978, David Flynn frá 1981 til 1992 og James Keach frá 1993 til 2015. Hún deilir tveimur börnum með Flynn, þeim Katherine og Sean, og á tvíburadrengi með Keach.

Áður en Seymour kynntist Zambetti var hún í sambandi með kvikmyndaleikstjóranum David Green í níu ár, en óljóst er hvenær þau slitu sambandi sínu. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nýjar og óvenjulegar hugmyndir um leiðir til fjáröflunar vekja áhuga þinn í dag. Möguleikarnir eru óteljandi og það er synd að sitja með hendur í skauti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Ragnheiður Jónsdóttir
3
Unnur Lilja Aradóttir
4
Colleen Hoover
5
Snæbjörn Arngrímsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nýjar og óvenjulegar hugmyndir um leiðir til fjáröflunar vekja áhuga þinn í dag. Möguleikarnir eru óteljandi og það er synd að sitja með hendur í skauti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Ragnheiður Jónsdóttir
3
Unnur Lilja Aradóttir
4
Colleen Hoover
5
Snæbjörn Arngrímsson